Jæja, hvað er uppi? ........
Ætli það sé ekki best að ég fari að blogga hérna svo að Eyrún
hætti að bera út svoddan slúður eins og hún hefur gert upp á
síðkastið
...sá hlær best sem síðast hlær múhahhaahha.
En já síðustu helgi var víst varið í ýmsa gjörninga eins og
partýstand, feitt djamm
, fylgjast með glímumóti, læra og fleira
chill
.. jáhá gaman gaman.
Ég hef verið mikið að spá í einu undanfarið en það er lengd
sólarhringsins
. Hann er einfaldlega ekki nógu langur, allavega
ekki fyrir mig. Mér finnst allavega erfitt að koma skóla,
heimalærdómi, matmálstímum, æfingum, hestamennsku, chilli, 8 tíma
svefni og öðru fyrir á þessum 24 klst.
Bara svona smá
hugleiðing...hehehehe.
Þessa vikuna og næstu er ég í æfingakennslu
, vá, þið getið
ekki trúað því hvað það er gaman. Ég er allavega ánægð að mér hefur
ekki snúist hugur um framtíðarstarf... ennþá
. Þessi börn eru
algjör snilld.
Ég er nú bara alveg hugmyndasnauð um efni núna
, eitthvað lítið
um að vera hjá mér og mínum um þessar mundir.
En þá bið ég bara að heilsa í bili
Kveðja
Sólveig DJAMMSKORA
Vúhú (ætla mér sko að standa
mig með þennan titil..hehe)